Guatamala, Irac, Iceland etc.

Svona verður okkar minnst í framtíðinni þegar talin verða upp þau lönd sem vestræningjar ( fólk sem býr á vesturlöndum) telja bananalýðveldi.

Samkvæmt gæjanum sem starfaði sem "alþjóðlegur þvingari" og var sendur til þessara landa til að múta eða þvinga ráðandi stjórnmálamönnum til hýðni svo hægt væri að koma auðlindum þessara landa undir stjórn rísastóru fyrirtækjanna þá mun einhver sem er við stjórnvölinn hér á landi og er í leiðtogahlutverki farast í flugslysi. Það er aðferðin???? WHAT?

Correct me if í´m wrong pls.


Var hægt að blokkerast einsog Þjóðverjar ?

Oft spáð í það hvernig heil þjóð gat í blindni elt lítinn forpokaðann (vel klæddan) gyðingahatara í tæp tíu ár? Hvernig gátu þjóðverjar sent lest eftir lest fyllta af fólki beint í gasklefana? Hvernig gat heil þjóð trúað þvi að hún ein gæti lagt undir sig alla jörðina....?

Við getum heimfært þetta uppá okkur íslendinga. Frá árinu 1993 var þjóðin leidd í blindni áfram af vel klæddum "leiðtogum", sem settir á forsíður hillirita sem dásömuðu vitringana ár eftir ár. Djöfull vorum við vitlaus. Þetta sannar enn einu sinni að sagan endurtekur sig, þó menntastigið sé hátt... hahaha. Í alvöru, hélt þjóðin að við værum svo klár að við gætum lagt undir okkur allann heiminn. Hvar ætluðu menn að stoppa.....

Nú sitja eflaust menn í reykfylltum bakherbergjum og spá í hvar næsta landfræðilega fórnalamb sé að finna. Þeir tala líklega ekki íslensku.


Jón er farinn heim...

Idolið mitt Jón Magnússon er fallinn. Horfinn inní hyldýpi Valhallar þar sem menn er klipptir til, sett gel í hárið og menn klæddir eftir dress códi að hætti hirðar Elísabetar Englandsdrottningar. Nú hverfur hinn síbrúni, hörklæddi frjálshyggjumaður sem sýnt hefur skörungsskap með því að segja það sem í hans brjósti býr. Skemmst er að minnast framgöngu hans rétt fyrir síðustu kosningar - og það þýddi "guts". Málið snérist um að skrá alla erlenda aðila sem komu inní landið í leit að vinnu. Rökin, jú líklega til þess að haldið sé utanum fólkið og börnin á miðlægum grunni sem eru að hefja nám, nú eða geta jafnvel fylgst með sjúkrasögu ef viðkomandi lenti í slysi eða fengi sjúkdóm eða hreinlega hvern er verið að jarða hverju sinni?? Svolítið kommon sens hefði maður haldið. 

Viðbrögðin voru ótrúleg. Allir flokkar já allir flokkar úthrópuðu Jóni og hans skrumflokki sem og Guðjóni formanni Frjálslyndra  sem fasistum og nasistum og ég veit ekki hvað. Guðjón þurfti  líklega að þýða allar greinarnar fyrir konuna sína, því mér skilst að hún sé borin pólverji. Sjaldan hef ég misst svona gersamlega álitið á pólitík eftir þetta.  

Nú gengur hann á vit spillingarinnar og stuttbuxnaplebbanna. Vonandi tryggir það þinn fjárhag því ekki held ég að menn gangi í sjálfstæðisflokkinn vegna hugsjónarinnar um það að allir séu með sjáfstæðar skoðanir!!


Fyndinn íslenskur hóruheimur

Löggan vissi af því að rekið væri hóruhús í næsta húsi?? Þar voru "glaðar" hórur að taka á móti gröðum körlum og sýndu þeim glaðan dag. Flott. Allt löglegt og enginn skaði skeður. Mikið er ég feginn að þingmaðurinn Sigurður Kári kom í gegn lögum sem tryggja að hægt sé að selja líkama sinn löglega ef enginn annar græðir á því. Mikið er ég ánægður með framlag þingmannsins til okkar samfélags. Ofsalega hlakka ég til þegar þessi þróun hefur sannað gildi sitt og dætur hins nýja Íslands(vonandi ekki hans þó) finna gleðinu í hórdómsdjobbinu, því svo virðist sem að óvenju hátt hlutfall kvenna á Íslandi sem stunda vændi geri það eingöngu gleðinnar vegna. Allavega má draga þá ályktun ef tekið er mið af aðgerðum löggunnar. Nú skulum bara vona að engar hórur verði óánægðar  eða þunglyndar og vilja stytta sér stundir með því að svolgra í sig pillum eða öðrum óþverra sem gleðji þær milli heimsókna. Þá er bara að bíða eftir þingmanninum og vona að hann komi með eitthvað sniðugt frumvarp sem heimilar líka dóp, þá verður allt í lagi og allir glaðir.

Fyndið með Allianz dóminn

Nú er verið að birta langan pistil um það hvernig Allianz misuppfærði viðskiptavini sína. hahaha. Þekki soltið til í þessu. Ótrúlegt hvað þetta hefur tekið langan tíma. Frá ´95 seldu menn Sun Life eins og um lífeyrissjóð væri að ræða. Seldu mökk af fólki. Hvar er það núna. Síðan byrjuðu bankarnir. Ekkert gerðist, enginn kostnaður, ekkert utanumhald og bankastarfsfólkið las eitthvað af tölvuskjánum sem var þeirra heilagi sannleikur. Nú eru fjórtán ár liðin síðan farið var að selja langtímasparnað og þá fyrst er farið að spá í hvort framsetninginn sé "lögleg".  Ef eftirlitsaðilar hefðu hlustað á ruglið í þessu sölufólki, þessum kringlumormónum eða þessu siðblinda gengi sem selur allt ef það er hægt að græða á því, þá væri öldin önnur. Eða hvað? Búið er að kvarta um framsetningu á þessu um árabil, en ekker hefur gerst fyrr en nú og þá snýst málið um samanburð sem sendur er til vv Allianz. Hvernig væri að einhver óhlutdrægur bæri saman þessar leiðir Í DAG. Þjóðverjar vita nefnilega hvað gerist þegar bankar hverfa, eða fara á hausinn. SPARNAÐURINN HVERFUR. Nú væri gaman að heyra í öllum besservissurunum sem drógu vini og fjölskyldur í ruglið sem borgaði mest.....


Um bloggið

Olegsky

Höfundur

Helgi Ásgeir Harðarson
Helgi Ásgeir Harðarson
Tiltölulega einfaldur maður sem býr í suburbiu höfuðborgasvæðisins.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband