16.2.2009 | 14:01
Fyndið með Allianz dóminn
Nú er verið að birta langan pistil um það hvernig Allianz misuppfærði viðskiptavini sína. hahaha. Þekki soltið til í þessu. Ótrúlegt hvað þetta hefur tekið langan tíma. Frá ´95 seldu menn Sun Life eins og um lífeyrissjóð væri að ræða. Seldu mökk af fólki. Hvar er það núna. Síðan byrjuðu bankarnir. Ekkert gerðist, enginn kostnaður, ekkert utanumhald og bankastarfsfólkið las eitthvað af tölvuskjánum sem var þeirra heilagi sannleikur. Nú eru fjórtán ár liðin síðan farið var að selja langtímasparnað og þá fyrst er farið að spá í hvort framsetninginn sé "lögleg". Ef eftirlitsaðilar hefðu hlustað á ruglið í þessu sölufólki, þessum kringlumormónum eða þessu siðblinda gengi sem selur allt ef það er hægt að græða á því, þá væri öldin önnur. Eða hvað? Búið er að kvarta um framsetningu á þessu um árabil, en ekker hefur gerst fyrr en nú og þá snýst málið um samanburð sem sendur er til vv Allianz. Hvernig væri að einhver óhlutdrægur bæri saman þessar leiðir Í DAG. Þjóðverjar vita nefnilega hvað gerist þegar bankar hverfa, eða fara á hausinn. SPARNAÐURINN HVERFUR. Nú væri gaman að heyra í öllum besservissurunum sem drógu vini og fjölskyldur í ruglið sem borgaði mest.....
Um bloggið
Olegsky
Nýjustu færslur
- 23.8.2009 Guatamala, Irac, Iceland etc.
- 18.8.2009 Var hægt að blokkerast einsog Þjóðverjar ?
- 25.2.2009 Jón er farinn heim...
- 16.2.2009 Fyndinn íslenskur hóruheimur
- 16.2.2009 Fyndið með Allianz dóminn
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.