16.2.2009 | 16:48
Fyndinn íslenskur hóruheimur
Löggan vissi af því að rekið væri hóruhús í næsta húsi?? Þar voru "glaðar" hórur að taka á móti gröðum körlum og sýndu þeim glaðan dag. Flott. Allt löglegt og enginn skaði skeður. Mikið er ég feginn að þingmaðurinn Sigurður Kári kom í gegn lögum sem tryggja að hægt sé að selja líkama sinn löglega ef enginn annar græðir á því. Mikið er ég ánægður með framlag þingmannsins til okkar samfélags. Ofsalega hlakka ég til þegar þessi þróun hefur sannað gildi sitt og dætur hins nýja Íslands(vonandi ekki hans þó) finna gleðinu í hórdómsdjobbinu, því svo virðist sem að óvenju hátt hlutfall kvenna á Íslandi sem stunda vændi geri það eingöngu gleðinnar vegna. Allavega má draga þá ályktun ef tekið er mið af aðgerðum löggunnar. Nú skulum bara vona að engar hórur verði óánægðar eða þunglyndar og vilja stytta sér stundir með því að svolgra í sig pillum eða öðrum óþverra sem gleðji þær milli heimsókna. Þá er bara að bíða eftir þingmanninum og vona að hann komi með eitthvað sniðugt frumvarp sem heimilar líka dóp, þá verður allt í lagi og allir glaðir.
Um bloggið
Olegsky
Nýjustu færslur
- 23.8.2009 Guatamala, Irac, Iceland etc.
- 18.8.2009 Var hægt að blokkerast einsog Þjóðverjar ?
- 25.2.2009 Jón er farinn heim...
- 16.2.2009 Fyndinn íslenskur hóruheimur
- 16.2.2009 Fyndið með Allianz dóminn
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.